15.05.2012 22:28
Og hvað haldiði...
Svona lítur bærinn út 15 maí 2012
En mér varð nún hugsað til þess í morgun vegna þess að elsku litla systir mín á afmæli þessi elska orðin 28 ára konan að það hefði nú verið asnalegt að gefa henni tennisspaða á svona degi í afmælisgjöf en fyrir þá sem að ekki vita þá var það aðalgjöfin sem hún fékk á sínum yngri árum á meðan ég haustbarnið fékk gjarnan ullarsokka en langaði reyndar í tennisspaða. Svo ég sendi henni þessa athugasemd í morgun en hún er bæði klók og fyndin hún systir mín og sagði að það mætti alltaf nota þá fyrir snjóþrúgur! Fyndin.
En þó svo að það blási ekki byrlega þessa dagana þá er nú svolítið skondið að standa í því að vera með allt lambfé inni og fyrir þá sem vilja læra af reynslunni þá er svona vor dýrmætt í reynslubankann. Maður verður nú að reyna að taka það jákvæða út úr þessu og svo fá auðvitað túnin heilmikla vætu.
En ætli þetta sé nú ekki orðið gott barasta. Til hamingju með daginn Stína mín.
30.04.2012 07:10
Vorið er komið
Þeir eru nú ekki svona lukkulegir kettlingarnir á heimilinu
... og grundirnar gróa.
Jæja þá er apríl að ljúka, bara nokkuð merkilegur mánuður að baki. Sauðburður hafinn með öllu tilheyrandi og kettlingar fæddust á bænum sem fá svipaða umönnun frá Bjarkey og kisan okkar þegar hún kom fyrst, semsagt þeir eru vandir við allt. Líklega munu þeir búa að því til frambúðar, en sú stutta sér um það að undirbúa þá fyrir lífið og átökin sem þeir geta lent í.
Svo eru einhver vorverk á dagskrá en það er þetta venjulega viðhald á girðingum og kannski einhverjar nýjar og svo er nú aðalmálið núna en það er að koma niður nýrri rotþró fyrir sumarið svo það má nú aldeilis gera þið vitið hvað með fullt rassgat...
En svo fór fjölskyldan á tónleika í kirkjunni á Hofsósi í vikunni með Stebba og Eyfa og voru það fyrstu tónleikar Bjarkeyjar, hún minnti reglulega á það yfir fyrstu lögunum að þetta var ekki Nína sem var verið að syngja en svo sofnaði sú stutta og mátti ég leggja mig mikið fram við að vekja hana fyrir lokalagið sem var einmitt Nína sem er uppáhaldslagið, en hún uppskar áritaðan disk frá þeim félögum og nú er það Nína sem ómar í bílnum hvert sem farið er og hvað sem ferðin er löng. Nína er bara alltaf hjá okkur.
Nú er það bara maí...
18.04.2012 07:08
Fyrsta lambið
Bjarkey með "Vidda" sinn
Já það gat verið að það kæmi eitt fyrir tímann en það bar gemlingur í gærmorgun, eldsprækur lambhrútur er kominn í heiminn. Gemlingarnir og ærnar sem voru sæddar gætu farið að bera eftir helgi, svo þetta var kannski í það fyrsta en voða gaman þrátt fyrir það og fyrst lambið er spækt og það gengur vel. Svo var engin smá lukka hjá heimasætunni með lambið, knúsaði það og gaf því svo nafn, Viddi það er málið, og svo fór hún að spá í því hvað öll hin lömbin ættu að heita og þuldi upp nöfn á helstu teiknimyndapersónum samtímans löngu eftir að hún var lögst á koddann. Það verður ekki vandamálið með nöfnin allavega.
En að hestamennskunni, þá eru nánast allir hestar farnir til sinna heima sem hafa verið í tamningu og gengið bara býsna vel með þá. Af okkar hrossum er hún Hending inni og stefnt er með hana í dóm í vor, hún er enn síst á brokki en aðrar gangtegundir nokkuð góðar en svo veit maður aldrei hvernig þetta tekst til þegar á hólminn er komið.
Svo er stefnan sett á Tekið til kostanna á Sauðárkrók um helgina en þar verður fræðsla og skemmtilegheit í formi kennslusýningar frá Hólaskóla og svo reiðhallarsýning um kvöldið.
En svo er bara að bíða og sjá hvort ekki fari að fjölga lömbunum á bænum, vorið er jú á næsta leyti.
03.04.2012 07:04
Gæðingafans í Svaðastöðahöllinni
Roði frá Garði var á Stóðhestasýningunni
Þeir hestar sem sitja eftir hjá mér voru allt stólpagripir og áttu það sammerkt að fara fallega og áreynslulaust undir knöpum sínum. Má þar nefna hesta eins og Gust frá Gígjarhóli sem valsaði um gólfið, ferðmikill og skrefadrjúgur og bróðir hans Loka frá Selfossi sem heillaði held ég alla upp úr skónum og sjálfan sig upp úr hófhlífunum en þessir hestar eru synir Smára frá Skagaströnd. Einnig var frábær hópur með Blæ frá Torfunesi og hann sjálfur náttúrulega alveg frábær með Gísla í Þúfum í hnakknum. Einnig var Roði frá Garði góður og svo var ofsalega gaman að sjá Gust gamla frá Hóli á gólfinu með 8 ára knapa í hnakknum og einn af sínum eigendum, en gustur var heiðraður á sýningunni. Mikill kynbótahestur þar á ferð sem hefur svo rækilega skilað sínu og markað spor í hrossaræktarsögu landsins.
Svo má ætla að fyrstu lömbin fari að kíkja í heiminn eftir svona 3 vikur eða svo, en það eru sæðingarnir og kannski nokkur gemsa lömb sem gætu farið að koma. Þá er nú hætt við að það verði líf í tuskunum og svefnlausar nætur einhverjar.
En ætli ég láti þetta ekki duga í bili.
31.03.2012 14:22
Móra mín
Móra að gera sér dælt við frúna.
Ekki veit ég hvað það er sem veldur en hér á Grindum hafa mórauðar kindur verið ákaflega mannblendnar og mikið uppáhald eigenda sinna.
Ég man eftir fyrstu kindinni minni sem pabbi gaf mér, hún var mórauð og hét Mókolla, enda kollótt. Mókolla mín varð nokkuð fullorðin ær og skilaði líklega sæmilegum lömbum á þeim tíma. En ekki mátti gera upp á milli barnanna og fannst Stínu systur minni ómaklega að sér vegið og fékk sína eigin mórauðu kind, enda pabbi duglegur að láta eftir henni og leggja línurnar um það hvernig skuli ala upp stúlkur. En Móra hennar Stínu var með horn og fékk því að sjálfsögðu nafnið Hornótta Mókolla, gat það verið frumlegra? En sú kind var mjög stygg alla tíð nema þegar hún heyrði í Stínu í húsunum þá var hún fyrsta að garðabandinu til að láta þá stuttu kjassa sig.
En hver er ástæða þess að maður rifjar upp svona lagað og það á sjálfum veraldarvefnum? Jú kannski sú að nú er hún Bjarkey Dalrós alin upp eins og á að ala stúlkur upp og auðvitað á hún sína Móru. Móra hennar heitir að vísu Eik en Móra gengur svosem alveg líka. Fyrst og síðast var Móra sett til lífs vegna litarins, en þvílík hamingja og lukka sem þessi kind hefur fært í kotið er ómetanleg. Sem gemlingur var hún bara eins og hinir gemsarnir en það snarbreyttist þegar Bjarkey fór að koma í húsin. Þar sem hún gekk eftir garðanum eða skreið þá kom Móra þessi að hnusa að henni. Tókust miklir kærleikar á með þeim. Móra er eitthvert magnaðasta dýr sem við höfum átt og á mikið í okkur öllum, hún kemur hlaupandi úr heyinu þegar kallað er og ekki sakar að vera með brauð í hendinni eða fóðurbæti að gefa henni. Móra er mikið uppáhald og skilar að auki góðum lömbum.
En málið er að það læra börnin sem fyrir þeim er haft.
19.03.2012 07:25
Bjarkey 4.ára
Það kom að því. Blessað barnið bara orðin 4.ára gömul. Heljar veisla var haldin í gær og ekki laust við að foreldrarnir væru nokkuð fegnir þegar komið var að kvöldi. En þetta var alveg ógurlega gaman.
Tók inn á dögunum 2.vetra fola í þeim tilgangi að gera bandvanann og spekja hann aðeins, en það er stóðhestefni sem ég á með Brynleifi í Dalsmynni og heitir Kraftur frá Dalsmynni. Ekki líst okkur félögunum ver á gripinn eftir að vera búnir að taka hann inn því þetta er geðprýðis foli, stór og myndarlegur og rúllandi töltgengur. Ætternið bendir líka til þess að þarna gæti verið býsna mikið tölt í genunum og vonandi gæðingsefni. Faðir hans er Þristur frá Feti og móðirin heitir Iða frá Dalsmynni, 1.verðlauna hryssa sem Brynleifur á. Kraftur fór út um helgina aftur og flugteymist um allt og er bara notalegur í umgengni. Ég held að þessi hestur verði notaður í sumar á eina hryssu hjá okkur.
Svo er fínasta lag á tamningum, það eru að vísu að fara nokkur hross út núna um mánaðarmótin og því verður líklega rólegra í framhaldinu, en það er svosem nóg annað hægt að hafa fyrir stafni, td líður að því að maður fari að setja upp sauðburðaraðstöðu og koma öllu því í lag. Búnaðarfélagið hélt sinn aðalfund á dögunum og voru sýndar þar niðurstöður ársins hjá þeim bæjum á svæðinu sem eru í skýrsluhaldi í sauðfjárrækt. Grindur komu þar ákaflega vel út en þess ber að geta að nokkuð færra fé er hjá okkur en þeim bæjum sem voru í kring um okkur á töflunni. Við vorum á topp 5 listanum fyrir gerð, þunga, frjósemi og fjölda lamba eftir hverja á sem skilar sér af fjalli en þar vorum við efst á lista. Svo voru veitt verðlaun fyrir efsta lambhrút á svæðinu og efsta veturgamla hrút, og voru glæsilegir hrútar sem hlutu verðlaunin.
En ætli þetta sé ekki bara orðið ágætt í bili.
07.03.2012 17:40
Mottumars
Mottumars hjá kallinum...
En að öðru. Það er búið að rýja kindurnar á bænum og fara með ullina svo nú er allt fé inni og er ekkert nema hamingjan að fara í húsin, að vísu tilkynnti Bjarkey mömmu sinni það í gær að Móra væri orðin allsber og vísaði þar til þess að engin ull væri á henni frekar en hinum kindunum.
Svo er svingur á tamningum bæði að koma inn nýjir hestar og einhverjir að fara heim til sín, reyndar fékk tamningamaðurinn tak í bakið í fyrradag en skrölti þó við útreiðar í gær en það var minna um það í dag. En verð vonandi orðinn góður á morgun.
En ég vil að endingu hvetja fólk til að finna sinn mann á mottumarsinum og leggja málefninu lið.
29.02.2012 22:29
Hlaupársdagur
Ekki oft sem maður fær tækifæri til að setja inn fréttir á hlaupársdegi svo það er um að gera að nota daginn. Það er nú svosem ekkert klikkað í gangi annað en það er rúningur framundan, og svo útreiðar. En það er að fara hestur heim sem er búinn að vera í tamningu núna í 3 mánuði frá Garði í Hegranesi. Enn einn gæðingurinn sem kemur frá því búi, en ég hef verið svo heppinn að fá að kynnast þeim nokkrum þaðan. Svo er ég að setja út hross frá mér sem eru búin að vera inni síðan í desember og fá núna frí, enda mikið búið að breytast í þeirra lífi síðan þau komu inn í desember, ósnert tryppin eru orðin vel reiðfær hestefni.
Svo er byrjað að velta fyrir sér stóðhestum fyrir sumarið, og hvort og hvaða hryssum eigi að halda, en það gætu orðið breytingar í þeim efnum fram til síðustu stundar.
En þá er það bara rúningurinn framundan.
22.02.2012 10:01
Jæja...
Skyldi þessi eiga eftir að hrópa JÆJA í hestaferðum?
Hver kannast ekki við í hestaferðum og jafnvel heimsóknum þegar JÆJA hljómar. Þá er sterklega gefið til kynna að áfram skuli haldið og ekkert slugs dugi lengur. Menn skulu gjöra svo vel og koma sér í hnakkinn og fara að hugsa sér til hreyfings. Þannig er það í tamningunum þessa dagana, það er bara að halda áfram og vinna. Jæja.
Í kvöld fer meistaradeild Norðurlands af stað með látum, sjálfur kemst ég ekki til að horfa því miður því ég hef lofað tíma mínum í annað næstu vikurnar en það er undirbúningur á verki hjá Leikfélagi Hofsóss þar sem kallinn ætlar að sýna leiklistarhæfileika sína.
Merkisfrétt vikunnar er líklega hvarfið dularfulla á heimiliskettinum, en hún fór á dögunum í eitthvert óútskýranlegt ferðalag og vorum við farin að undrast um hana. Svo erum við stödd á Akureyri á laugardagskvöldinu og fáum símhringingu úr Hofsósi og spurt hvort að kötturinn sé týndur, þá hafði hún verið í burtu á 4. sólarhring. Svo þegar við komum heim seinna um kvöldið sóttum við umræddan kött og fórum með heim og það voru miklir fagnaðarfundir hjá Bjarkey og kettinum um morguninn.
JÆJA... svona gengur þetta.
09.02.2012 17:24
Tamningar
Þær ganga nokkuð vel tamningarnar þessa dagana, gott veður til útreiða og hrossin komin vel á veg. Einhver hross fara til eigenda sinna um mánaðarmótin næstu svo það er eitthvað að losna af plássum líka ef fólk hefur áhuga á að koma hrossum í tamningu, eða þjálfun.
En þar fyrir utan gengur lífið sinn vanagang í dalnum, þorrinn er langt kominn og ekki laust við að maður sé farinn að huga að rúningi og í svona tíð eins og er búin að vera þá er smá vor í manni líka. En fyrst að farið er að rita um kindur þá eru þær blessaðar mikið á beit þessa dagana eftir að það tók svona vel upp, fara í fjallið og bíta þar lyng og í kringum læki og koma svo heim á kvöldin og liggja þar, það er býsna skemmtilegt að fylgjast með þeim. En svo á ég von á að fá síld líka fljótlega svo það verður kærkominn fóðurbætir fyrir þær að fá hana ofan á beitina.
Ætli þetta sé ekki bara gott í bili...
27.01.2012 22:00
Janúar að líða hjá
Dagrún okkar er komin vel af stað og orðin vel reiðfær
Umhleypingasamur janúar er að líða. Það hefur inn á milli viðrað ágætlega til útreiða en ekki nógu mikið að mínu mati. Annars ganga tamningar vel það sem af er vetri og er djásnið komið á hús hún Hending okkar. Svo er bara hið daglega amstur við það sama, að vísu voru folöldin tekin inn um daginn hjá Tengdó en við eigum nú ekki nema eitt og hefur síðasta vika farið aðeins í að gera þau mannvön og mýla þau osfrv.
Svo er Þorrablót Hofshrepps hins forna á morgun og er engin smá stemning fyrir því og eitthvað kemur af fólki til okkar sem ætlar að taka þátt í gleðinni. Súrmatur og hangikjöt, svið og hákarl og allt tilheyrandi er á leið í trogin og verður skolað niður með einhverju tilheyrandi.
En nú er ekkert annað en bíða eftir Þorrablótinu og svo að leyfa lífinu að ganga sinn vanagang.
Er samt með hugleiðingar um ræktun sem ég verð að koma frá mér hérna alveg á næstunni.
09.01.2012 07:44
Pistillinn
Hvernig var það var ekki búið að lofa hérna pistli ársins 2011?
Það setti allt á svartakaf í snjó í janúar og var það nú eiginlega síðasti snjór vetrarins allavega í einhverju magni en svo tók upp eftir það. Prýðis útreiðarveður var og gengu tamningar vel þar sem graðhestur frá Brynleifi og hryssa í minni eigu voru topparnir og héldu sér þar út veturinn. Svona leið veturinn með hinu ýmsa skaki eins og gengur og svo fór að líða undir vor. Fyrstu sæðingslömbin komu í heiminn en það voru goltóttar gimbrar undan Grábotna. Já vorið stóð lengi yfir og var kalt og andstyggilegt og allur búpeningur var á gjöf langt fram í júní en það var ekki fyrr en um mánaðarmótin júní/júlí sem eitthvað fór að hlýna að ráði. Sprettutíð var með lakara móti þetta sumarið og víða heyjaðist ver en síðustu ár, og sumstaðar mikið ver. Sjálfur var ég heyjandi alla króka og kima sem ég komst í og út um allar koppagrundir til að búa sem best fyrir veturinn og held ég að það hafi á endanum orðið svo, þó það komi auðvitað ekki í ljós fyrr en í vor.
Hestaferð var farin í Fagranes í júní og svo voru hestadagar haldnir á Siglufirði í ágúst. Aðeins seldist af hrossum á árinu og veitti ekki af að losa um nokkur hross til að létta á gjöfinni í vetur. Þau hross sem fóru á afrétti fóru seinna en síðustu ár en komu býsna vel út lítandi til baka.
Viðskiptalíf á bænum var með líflegra móti en það er búið að skipta út öllum bílum sem árið 2011 hófst með og einnig dráttarvél og geri aðrir betur. Galloper bifreið var seld í haust og kom inn fyrir hann Mitsubishi L-200. Hyundai Santa fe var seldur í vor og inn kom Toyota Corolla, svo í desember þá var Zetorinn seldur með trega og ekkasogum en inn kom fyrir hana Fiat 70-90 dráttarvél með ámoksturstækjum.
Göngur og heimtur á fé: Líkt og vorið var lélegt þá kom fyrsti snjórinn snemma í haust og líkt og sauðburður gekk vel þá voru heimtur ótrúlega góðar. Þegar talning var gerð vantaði einungis tvö lömb og veturgamla á, sem reyndar skilaði sér svo á milli jóla og nýárs og með lambið sitt með. Leiðangur var gerður í haust til að kaupa kynbótahrút á bæinn og er árangurs að vænta í vor.
Aðeins 1 folald kom í heiminn og var það skjóttur hestur undan Gammi frá Steinnesi, fékk sá nafnið Kveldúlfur. Svo var aðeins einni hryssu haldið svo það verður ekki mikil fjölgun í hrossastóðinu í vor.
Í lok árs hafði hrossunum fækkað aðeins og á móti hafði kindum fjölgað, auk þess að hvolpur er kominn á heimilið sem er tík af border collie kyni og kemur hún úr Eyjafirði. Fékk hún nafnið Gáta.
Svona gekk búskapurinn nokkurn vegin fyrir sig á Grindarbúinu á síðasta ári og nýtt ár bíður og nýjar áskoranir.
Kveðja úr dalnum.
31.12.2011 10:17
Jólaglaðningur
Tók þessa frétt af vef feykis.
Sannkallaður jólaglaðningur
Þrír sleðamenn fóru af stað í Deildardalsafrétt í Skagafirði sl. miðvikudag í þeim tilgangi að athuga hvort eitthvert fé væri að finna þar. Í leitirnar kom veturgömul ær með lambi frá bænum Grindum og var hún býsna ánægð er hún komst heim og í hús að sögn eiganda hennar, enda ekki ónýtt að mæta beint í fengitímann.
-Ærin og lambið voru nokkuð spræk þrátt fyrir að hafa verið úti allan þennan tíma en bæði búin að leggja nokkuð mikið af, sagði Rúnar Páll Hreinsson bóndi á Grindum.
-Gott sleðafæri er víða svo ef menn vita af eða vantar fé af fjalli er ekki úr vegi að nota gott veður og góða færð til að fara af stað og kanna málin. Þetta er sannkallaður jólaglaðningur, sagði Rúnar ánægður með heimtinguna.
Já það var ekkert smá ánægjulegt að fá hana þessa heim með lambinu sínu í þokkabót, en það er hrútur sem verður kópalinn sem sauður í vetur. Ærin er komin í spil hjá hrút og allt í lukkunnar velstandi. En nú er síðasti dagur ársins 2011 og nýtt ár handan við hornið, ég verð alltaf svona barnslega kvíðinn fyrir áramótum og því að kveðja gamla árið en þetta er víst gangurinn, einn kemur þá annar fer.
Pistillinn verður birtur á nýju ári, en þeim sem hafa lagt leið sína á þessa síðu óska ég gleðilegs nýs árs með þökk fyrir árið sem er að líða.
Kveðja úr Deildardalnum þar sem ævintýrin gerast...
28.12.2011 06:58
Hvað er að frétta...
Hún líkist þessari nýja vélin sem er í hlaðinu heima.
Já hvað er að frétta? Jólastressið hefur greinilega náð tökum á undirrituðum og svo spennufall strax í kjölfarið því ekki hefur nú verið sérstaklega mikill fréttaflutningur hér í næstum því 3 vikur. En hér er nú það helsta:
Tamningar ganga sæmilega, reyndar hefur ekki verið neitt sérstaklega mikið útreiðarveður en það er unnið í inniaðstöðunni í staðinn, sem er gulls í gildi í svona tíð. Svo er eitthvað meira að koma af hrossum í tamningu nú um áramótin og svo bætist við í janúar, svo að útlitið er bara gott fyrir veturinn. Svo er líf hrútanna í miklum blóma þessa dagana en þeir kappkosta við að lemba og gera sér dagamun yfir hátíðirnar.
Nýr traktor er einnig kominn á bæinn einskonar jólagjöf í dýrari kantinum en það er vél að gerðinni Fiat og er framdrifsvél með tækjum svo nú verður hægt að moka hlaðið ef það fyllir allt af snjó, og talandi um snjó eða öllu heldur skrifandi um snjó, þá lítur út fyrir að það verði harðfenni næstu vikur ef fram fer sem horfir, það hefur hlánað aðeins en fryst og jafnóðum aftur og nær alveg jarðlaust að verða. Ekki nein sérstök tíð fyrir hross já og fleiri skepnur. Sjálfur væri ég alveg til í að það tæki svolítið upp af þessum snjó og hlýnaði aðeins en þetta er jú Ísland svona getur þetta verið.
Svo er það pistill ársins á næsta leyti...
08.12.2011 07:34
Tekið á hús
Dagur frá Strandarhöfði, er ekki föðurlaus lengur. Mynd er tekin af vefnum hestafrettir.is
Þar kom að því, loksins er búið að taka hross á hús. Ekki er nú hópurinn stór en það eru bæði hross frá okkur og öðrum. Í vikunni breyttist meira að segja ætternið á einu trippinu okkar sem nú er komið inn en það er Dagsdóttir frá Strandarhöfði. Það þykir orðið fullsannað að Dagur meistari er sonur hests sem Gandur heitir og er frá Skjálg, sá hestur er þó Náttfara sonur svo það er Náttfari í trippinu þó það sé ekki í gegn um Baldur frá Bakka eins og til stóð. En það er allavega komið ætterni á trippið, sem við köllum Dagrúnu.
Svo voru fáeinar ær sæddar í byrjun mánaðar svo við ættum að fá fyrstu lömbin upp úr 20.apríl, en fengitími hefst þó ekki fyrr en í næstu viku.
Alhvít jörð er og nokkur snjór, sem er svosem í lagi, en það hafa líka verið nokkrar frosthörkur sem er kannski óvenjulegt miðað við árstíma, að það skuli vera svona ofboðslega kalt í desember. Þó eru einhverjar líkur á að frostið minnki um helgina, sem væri mjög gott.
Svo eru það bara tamningar framundan...

