22.02.2012 10:01

Jæja...


Skyldi þessi eiga eftir að hrópa JÆJA í hestaferðum?

Hver kannast ekki við í hestaferðum og jafnvel heimsóknum þegar JÆJA hljómar.  Þá er sterklega gefið til kynna að áfram skuli haldið og ekkert slugs dugi lengur.  Menn skulu gjöra svo vel og koma sér í hnakkinn og fara að hugsa sér til hreyfings.  Þannig er það í tamningunum þessa dagana, það er bara að halda áfram og vinna.  Jæja.

Í kvöld fer meistaradeild Norðurlands af stað með látum, sjálfur kemst ég ekki til að horfa því miður því ég hef lofað tíma mínum í annað næstu vikurnar en það er undirbúningur á verki hjá Leikfélagi Hofsóss þar sem kallinn ætlar að sýna leiklistarhæfileika sína.

Merkisfrétt vikunnar er líklega hvarfið dularfulla á heimiliskettinum, en hún fór á dögunum í eitthvert óútskýranlegt ferðalag og vorum við farin að undrast um hana.  Svo erum við stödd á Akureyri á laugardagskvöldinu og fáum símhringingu úr Hofsósi og spurt hvort að kötturinn sé týndur, þá hafði hún verið í burtu á 4. sólarhring.  Svo þegar við komum heim seinna um kvöldið sóttum við umræddan kött og fórum með heim og það voru miklir fagnaðarfundir hjá Bjarkey og kettinum um morguninn.

JÆJA... svona gengur þetta.

Flettingar í dag: 10
Gestir í dag: 5
Flettingar í gær: 53
Gestir í gær: 18
Samtals flettingar: 53069
Samtals gestir: 16527
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 05:32:49