Grindur - Skagafirði
Grindur er jörð í Deildardal, ca 4 km frá Hofsós í Skagafirði. Þar búum við Rúnar Páll, Auður Björk og dóttir okkar, Bjarkey Dalrós. Við keyptum jörðina árið 2008 af foreldrum Rúnars, en hann er fæddur og uppalinn á bænum.
Rúnar er smiður að mennt en hefur einnig lokið námi við Hólaskóla, Háskólann á Hólum og er útskrifaður Tamningamaður og þjálfari þaðan. Rúnar er alinn upp á Grindum og hefur nú ásamt konu sinni tekið við jörðinni. Auður er hárgreiðslumeistari að mennt og í bígerð er opnun hárgreiðslustofu. Á Grindum stundar Rúnar tamningar og þjálfun. Sumarið 2009 var gamalli hlöðu breytt í hesthús og inni reiðaðstöðu, sem frúin gaf nafnið Grindarhöllin.
Við eigum líka eitthvað af rollum og hyggjumst fjölga þeim eitthvað meira, gott að eiga smá sparifé.
